Jæja, skulda víst eina færslu hérna,... er núna uppí skóla,
eðlisfræðipróf á mánudaginn... er að verða geðveikur og kominn
alltof mikill galsi í mann eftir 7 kaffibolla...
Gerði reyndar alveg killerfærslu hérna um daginn með
hondumyndatökunni... kemur vonandi á morgun ... var alveg í
klukkutíma að gera hana.. svo staðfesta “.... kom ekkert, loggaðist
bara út ... fór bara og skokkaði smá hring... geðveikis pirringur
sem yfirtekurmann þegar klukkutímavinna er algjörlega til einskis
... svona svipað og að halda uppi samræðum við Framsóknarmenn....
tímaeyðsla ...
Segi, svona...
Hulda vinkona var Stórglæsileg í Ungfrú
Reykjavík...
keppnin kemur enn á óvart og er greinilega Gjörspillt,... þar
sem þessar stúlkur fara í keppnina tilað láta dæma sig þá finnst
mér rétt að koma þessu á blað ...
Stelpan sem lenti í öðru sæti átti að Sigra
þetta... Bar af og var
langlæsilegust þarna ...
.
Selma bar af í Ungfrú Norðurland og átti
sigurinn algjörlega skilinn, Til hamingju 
Ég
spái því að annað sæti Ungfrú Rvk eða Selma Taki ungfrú Ísland
...
.
Varðandi Ungfrú Vesturland ... Aldís var glæsileg og sigraði
réttilega ...
en
varðandi keppnina... Þetta er bara staðnað drasl...
Ég
mætti ekki á hana sjálfa, en er viss um að hún hafi komið vel út í
bíóhöllinni sjálfri en það sem ég varð var við
einkenndist af algjöru metnaðarleysi ...
ekkert samkeppnishæf við aðrar keppnir út á við, "útávið" =
auglýsa þetta útá við, ef maður þekkti ekki keppandann persónulega
þá var manni alveg skítsama ... þarf að koma þessu aðeins út til
fólksins með flottri umgjörð... má taka Ungfrú Norðurland sér til
fyrirmyndar ... flott síða, vel auglýst, Professional Myndatökur
... ég varð meira var við allar aðrar keppnir
en Vesturland... og ég á heima á Akranesi ... Pirraði mig
...
einhver sammála ?
Mæli endilega með einu lagi...
Tiga – Louder
then a Bomb !
... kem með e-ð sniðugra á morgun ...ef ég nenni...
... já ... alveg rétt þetta verður víst að fylgja
...
Sorgleg staðreynd... Ég var ekki kosinn ritari ...
Formaður = úr fjármálaverkfræði
Gjaldkeri = úr fjármálaverkfræði
Ritari = úr fjármálaverkfræði ...
Sjáiði e-ð mynstur hérna eða
...?
Ég
er kannski bara svona bitur 
Svona er helvítis klíkuskapurinn,...
J
Segi svona, hinn nýkjörni ritari er að koma á óvart með
nýbrigðum og á eftir að gera magnað síðu... pragma.is ... tékkið á
henni við tækifæri ... Tækifæri skilgreinist í þessu samhengi sem
“næsta haust” ...
Sveinn K ...
Þangað til næst 